31.12.2008 | 15:11
Ræflar, segi það og skrifa
Ætli þetta sé ekki í síðasta sinn sem kommúnistaritstjórn mbl.is leyfi mér að koma með athugasemd á fréttir þeirra og því við hæfi að enda hér.
Þetta er nú meiri aumi lýðurinn sem þarna er saman kominn til að reyna að komast í sjónvarpið - eða í einhverjum öðrum álíka hallærislegum tilgangi.
Hverjum er það til framdráttar að framkvæma skemmdarverk á eigum Hótel Borgar og stöðvar 2? og Hvaða tilgangi þjónar það þjóðinni að forsætisráðherrann (réttkjörinn, eftir lýðræðislegar kosningar nota bene) komist ekki í einhvern viðtalsþátt? Hvað er að ykkur auma fólk?
Af hverju í ósköpunum takið þið - ofdekruðu, óöldu kynslóðir - ykkur ekki saman í andlitinu og hættið þessum fíflagangi? Takið heldur einhvern þátt í að koma landinu ykkur upp úr lægðinni sem það nú er statt í, með einhverjum eðlilegum hætti. Farið að vinna, hættið að eyða peningum í áfengi og dóp, borgið skuldir ykkar og hættið að taka lán ofan í lán til að geta toppað vinina í húsnæði og mublum. Takið ábyrgð á ykkar eigin fjárfestingum og þar með ykkar eigin skuldastöðu. Ríkisstjórn Íslands ber ekki ábyrgð á ykkar eigin skuldastöðu. Það voru þið sem skrifuðuð undir lánin.
Smíðið ykkur stakk eftir vexti og takið ábyrgð á ykkar eigin gjörðum, aumu vælandi kynslóðir
Gleðilegt nýtt ár til allra hinna
Yfir og út
Hafa ruðst inn á Hótel Borg | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
HVERT ERT ÞÚ?
VGH (IP-tala skráð) 31.12.2008 kl. 15:18
þÚ VIRÐIST VERA AÐ KAFNA ÚR FREKKJU, AF HVERJU ERU EKKI UNDIR NAFNI ???
Sigurveig Eysteins, 17.1.2009 kl. 18:51
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.